Hilmir Freyr Heimisson vann öruggan sigur á Jólamóti Skákskóla Íslands og Skákakademíu Kópavogs sem fram fór í Stúkunni á Kópavogsvelli sl. fimmtudag. Alls tóku 32 ungir skákmenn úr Kópavogi þátt í mótinu.
Verðlaunahafar voru þessir:
1400 íslensk elo-stig og meira:
1. Hilmir Freyr Heimisson 8 v. (af 9)
2. Vignir Vatnar Stefánsson 7 ½ v.
3. Björn Hólm Birkisson 6 ½ v.
Í næst sætum komu:
4. - 6. Felix Steinþórsson, Dawid Kolka og Bárður Örn Birkisson allir með 6 vinninga.
Undir 1400 elo stigum:
1. Guðmundur Agnar Bragason 5 ½ v. ( 47,5)
2. Róvert Örn Vigfússon 5 ½ v. ( 46, 35,0 )
3. Aron Ingi Woodard 5 ½ v. ( 46, 34,5 )
Stúlknaverðlaun:
1. Móey María Sigþórsdóttir
12.12.2013 | 17:11
Hermann efstur á æfingu
Hermann Aðalsteinsson varð efstur á skákæfingu sem fram fór á Laugum sl. mánudagskvöld. Hermann vann allar sínar skákir, fjórar að tölu. Umhugsunartíminn var 15 á mann.
Efstu menn:
1. Hermann Aðalsteinsson 4 af 4
2. Ármann Olgeirsson 3
3. Sigurbjörn Ásmundsson 2
Síðasta skákæfing þessa starfsárs verður nk. mánudagskvöld 16. desember á Húsavík kl 20:30
12.12.2013 | 00:52
Jólapakkamót GM Hellis fer fram í Ráðhúsinu laugardaginn 21. desember.
Jólapakkaskákmót GM Hellis verður haldið laugardaginn 21. desember nk. í Ráðhúsi Reykjavíkur. Mótið hefst kl. 13 og er ókeypis á mótið. Mótið er fyrir börn og unglinga og fer nú fram í 16. skipti en það var fyrst haldið fyrir jólin 1996. Síðan hefur það verið haldið nánast á hverju ári og hefur alltaf verið eitt fjölmennasta skákmót ársins.
Keppt verður í allt að 5 flokkum: Flokki fæddra 1998-2000, flokki fæddra 2001-2002, flokki fæddra 2003-2004 og flokki fæddra 2005 og síðar og peðaskák fyrir þau yngstu (2007 og yngri). Tefldar verða 5 umferðir með 10 mínútna umhugsunartíma á mann. Jólapakkar eru í verðlaun fyrir 3 efstu sætin í hverjum aldursflokki fyrir sig fyrir bæði drengi og stúlkur. Auk þess verður happdrætti um 3 jólapakka í hverjum aldursflokki fyrir sig. Skráning á mótið fer fram hér á heimasíðu GM Hellis og er skráningarform efst á síðunni. Einnig er hægt að skrá sig á http://www.skak.blog.is/blog/skak/
Upplýsingar um skráða keppendur er að finna hér.
12.12.2013 | 00:07
Dawid og Sindri Snær efstir á æfingu.
Í yngri flokki var Sindri Snær Kristófersson efstur með 5v í sex skákum og var það Stefán Orri sem skellti honum strax í fyrstu umferð. Annar var Róbert Luu með 4,5v og þriðji var Ívar Andri Hannesson með 4v.
Eftirtaldir tóku þátt í æfingunni: Dawid Kolka, Hilmir Hrafnsson, Felix Steinþórsson, Óskar Víkingur Davíðsson, Jón Otti Sigurjónsson, Sigurjón Daði Harðarson, Mikhael Kravchuk, Alec Elías Sigurðarson, Birgir Ívarsson, Sigurjón Bjarki Blumenstein, Axel Óli Sigurjónsson, Oddur Þór Unnsteinsson, Halldór Atli Kristjánsson, Andri Gylfason, Baltasar Máni Wetholm, Ágúst Óli Ólafsson, Sindri Snær Kristófersson, Róbert Luu, Ívar Andri Hannesson, Brynjar Haraldsson, Stefán Orri Davíðsson, Birgir Logi Steinþórsson, Adam Omarsson, Sævar Breki Snorrason, Egill Úlfarsson, Óttar Örn Bergmann Sigfússon og Óskar Ingi Ólafsson.
Næsta æfing í Mjóddinni verður svo mánudaginn 16. desember nk. og hefst kl. 17.15. Stefnt er að því að skipta þá í tvo flokka eftir aldri og stigum. Æfingarnar eru haldnar í Álfabakka 14a í Mjóddinni, gengið inn á milli Subway og Föken Júlíu og salurinn er á þriðju hæð.
Barna og unglingastarf | Breytt 15.12.2013 kl. 15:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.12.2013 | 20:54
Bjarni, Kristján og Magnús héraðsmeistarar HSÞ í skák
3.12.2013 | 17:09
Ævar efstur á æfingu
Ævar Ákason varð efstur á skákæfingu GM-Hellis á Húsavík í gærkvöld. Ævar vann allar sínar skákir. Tímamörk voru 15 mín á skákina.
Lokastaðan:
1. Ævar Ákason 5 af 5
2. Hlynur snær Viðarsson 4
3. Hermann Aðalsteinsson 3
4. Sigurbjörn Ásmundsson 2
5-6 Bjarni Jón Kristjánsson 0,5
5-6 Jón Aðalsteinn Hermannsson 0,5
Næsta skákæfing verður á Laugum nk. mánudagskvöld
3.12.2013 | 01:50
Vignir Vatnar sigraði á hraðkvöldi
Vignir Vatnar Stefánsson sigraði öruggleg með fullu húsi eða 7v í jafn mörgum skákum á hraðkvöldi GM Hellis sem fram fór 2. desember. Annar var sigurvegari síðasta hraðkvölds Stefán Bergsson með 5v. Jöfn í 3.-4. sæti með 4,5v voru Sverrir Sigurðsson og Elsa María Kristínardótir en þau voru einnig jöfn á stigum, svo það var ekki ekki hægt að sker úr á milli þeirra hvort þeirra hlaut þriðja sætið. Vignir Vatnar Stefánsson dró svo í lok hraðkvöldsins Sverrir Sigurðsson í happdrættinu og fengu þeir báðir gjafamiða á Saffran. Þetta var í annað sinn í röð sem Sverrir er dreginn út svo hann getur boðið einhverjum með sér á Saffran.
Það verður nú gert hlé á þessum skákkvöldum fram yfir jól en næst viðburður í félagsheimili GM Hellis í Álfabakka 14a verður mánudaginn 30. desember kl. 20 og þá verður jólabikarmót GM Hellis.
Lokastaðan á hraðkvöldinu:
Röð | Nafn | Vinn. | TB1 | TB2 | TB3 |
1 | Vignir Vatnar Stefánsson | 7 | 21 | 0 | 7 |
2 | Stefán Bergsson | 5 | 14 | 0 | 5 |
3 | Sverrir Sigurðsson | 4,5 | 9,3 | 0,5 | 4 |
Elsa María Kristínardóttir | 4,5 | 9,3 | 0,5 | 4 | |
5 | Ólafur Guðmarsson | 3 | 4 | 0 | 3 |
6 | Vigfús Vigfússon | 2 | 5 | 0 | 2 |
7 | Gunnar Nikulásson | 2 | 2 | 0 | 2 |
8 | Björgvin Kristbergsson | 0 | 0 | 0 | 0 |
Hraðkvöld | Breytt 12.12.2013 kl. 00:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.12.2013 | 01:21
Felix og Baltasar efstir á æfingu
Í yngri flokki var Baltasar Máni Wetholm efstur með 5,5v í sex skákum og gerði aðeins jafntefli við Birgi Loga skólafélaga sinn úr Ölduselsskóla. Annar varð Róbert Luu með 5v. Síðan komu jafnir með 3,5v þeir Ívar Andri Hannesson, Birgir Logi Steinþórsson og Sævar Breki Snorrason. Þar þurfti að grípa til stigaútreiknings og þá var Ívar Andri hlutskarpastur og hlaut þriðja sætið.
Eftirtaldir tóku þátt í æfingunni: Felix Steinþórsson, Jón Otti Sigurjónsson, Axel Óli Sigurjónsson, Alec Elías Sigurðarson, Halldór Atli Kristjánsson, Sindri Snær Kristófersson, Oddur Þór Unnsteinsson, Baltasar Máni Wetholm, Róbert Luu, Ívar Andri Hannesson, Birgir Logi Steinþórsson, Sævar Breki Snorrason, Egill Úlfarsson, Adam Omarsson, Aron Kristinn Jónsson og Óttar Örn Bergmann Sigfússon
Næsta æfing í Mjóddinni verður svo mánudaginn 9. desember nk. og hefst kl. 17.15. Stefnt er að því að skipta þá í tvo flokka eftir aldri og stigum. Æfingarnar eru haldnar í Álfabakka 14a í Mjóddinni, gengið inn á milli Subway og Föken Júlíu og salurinn er á þriðju hæð. Annarri umferð í dæmatímum fyrir félagsmenn er búin og helstu viðfangsefni hafa verðið peðsendatöfl og taktísk dæmi. Þriðja umferð fer svo af stað eftir áramótin og þá verða m.a. tekin fyrir hróksendatöfl.
Barna og unglingastarf | Breytt s.d. kl. 01:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.12.2013 | 16:19
Jólapakkamót GM Hellis fer fram í Ráðhúsinu laugardaginn 21. desember

Keppt verður í allt að 5 flokkum: Flokki fæddra 1998-2000, flokki fæddra 2001-2002, flokki fæddra 2003-2004 og flokki fæddra 2005 og síðar og peðaskák fyrir þau yngstu. Tefldar verða 5 umferðir með 10 mínútna umhugsunartíma á mann. Jólapakkar eru í verðlaun fyrir 3 efstu sætin í hverjum aldursflokki fyrir sig fyrir bæði drengi og stúlkur. Auk þess verður happdrætti um 3 jólapakka í hverjum aldursflokki fyrir sig. Skráning á mótið fer fram hér á heimasíðu GM Hellis og er skráningarform efst á síðunni.
29.11.2013 | 15:01
Hraðkvöld í Mjóddinni hjá GM Helli mánudaginn 2. desember.
Skákfélagið GM Hellir heldur hraðkvöld mánudaginn 2. desember nk. og hefst taflið kl. 20:00. Tefldar verða 7 umferðir með sjö mínútna umhugsunartíma. Teflt er í félagsheimili GM Hellis í Álfabakka 14a í Mjóddinni.
Sigurvegarinn á hraðkvöldinu fær í verðlaun máltíð fyrir einn á Saffran. Einnig verður dreginn út af handahófi annar keppandi sem einnig fær máltíð fyrir einn á Saffran. Þar eiga allir jafna möguleika, án tillits til árangurs á mótinu.
Þátttökugjöld eru kr. 300 fyrir félagsmenn (kr. 200 fyrir 15 ára og yngri) og kr. 500 fyrir aðra (kr. 300 fyrir 15 ára og yngri).
Hraðkvöld | Breytt 1.12.2013 kl. 16:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.11.2013 | 10:27
Héraðsmót HSÞ í skák fyrir 16 ára og yngri
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 15:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.11.2013 | 22:14
Stefán Bergsson sigraði á hraðkvöldi
Stefán Bergsson sigraði öruggleg með 6,5v í sjö skákum á hraðkvöldi GM Hellis sem fram fór 25. nóvember sl. Það var aðeins Vigfús Ó. Vigfússon sem gerði jafntefli við kappann í fjórðu umferð. Í öðru sæti varð Vignir Vatnar Stefánsson með 5v og síðan varð Vigfús Ó. Vigfússon í þriðja sæti með 4,5v eins og Örn Leó Jóhannsson en aðeins hærri á stigum. Stefán Bergsson dró svo í lok hraðkvöldsins Sverrir Sigurðsson í happdrættinu og fengu þeir báðir gjafamiða á Saffran.
Næsta skákkvöld í félagsheimili GM Hellis í Álfabakka 14a verður mánudaginn 2. desember kl. 20 og þá verður einnig hraðkvöld.
Lokastaðan á hraðkvöldinu:
Röð | Nafn | Vinn. | TB1 | TB2 | TB3 |
1 | Stefán Bergsson | 6,5 | 30 | 21 | 27,3 |
2 | Vignir Vatnar Stefánsson | 5 | 26 | 19 | 15,5 |
3 | Vigfús Vigfússon | 4,5 | 29 | 21 | 16,3 |
4 | Örn Leó Jóhannsson | 4,5 | 27 | 19 | 13,8 |
5 | Páll Andrason | 4 | 27 | 19 | 11,5 |
6 | Sverrir Sigurðsson | 4 | 25 | 18 | 9 |
7 | Elsa María Kristínardóttir | 4 | 24 | 17 | 9 |
8 | Gunnar Nikulásson | 3,5 | 24 | 17 | 5,75 |
9 | Björgvin Kristbergsson | 2,5 | 21 | 15 | 2,75 |
10 | Pétur Jóhannesson | 1,5 | 21 | 15 | 2,25 |
11 | Steinar Ragnarsson Kamban | 1 | 22 | 16 | 1 |
12 | Egill Gautur Steingrímsson | 1 | 21 | 16 | 1,5 |
Hraðkvöld | Breytt 28.11.2013 kl. 17:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.11.2013 | 02:26
Óskar og Sindri Snær efstir á æfingu hjá GM Helli
Í yngri flokki var Sindri Snær Kristófersson efstur með 5v af sex mögulegum. Annar var Róbert Luu með 4,5v. Síðan komu jafnir með 4v þeir Birgir Logi Steinþórsson og Baltasar Máni Wetholm. Þar þurfti að grípa til stigaútreiknings og eftir tvöfaldan útreikning hlaut Birgir Logi þriðja sætið.
Þátttakendur að þessu sinni voru: Óskar Víkingur Davíðsson, Mikhael Kravchuk, Hilmir Hrafnsson, Heimir Páll Ragnarsson, Alec Elías Sigurðarson, Jón Otti Sigurjónsson, Axel Óli Sigurjónsson, Andri Gylfason, Sigurjón Daði Harðarson, Sigurjón Bjarki Blumenstein, Brynjar Haraldsson, Birgir Ívarsson, Sindri Snær Kristófersson, Róbert Luu, Birgir Logi Steinþórsson, Baltasar Máni Wetholm Gunnarsson, Ívar Andri Hannesson, Egill Úlfarsson, Stefán Orri Davíðsson, Aron Kristinn Jónsson og Óttar Örn Bergmann Sigfússon
Næsta æfing verður svo mánudaginn 2. desember nk. og hefst kl. 17.15. Stefnt er að því að skipta þá í tvo flokka eftir aldri og stigum. Æfingarnar eru haldnar í Álfabakka 14a í Mjóddinni, gengið inn á milli Subway og Föken Júlíu og salurinn er á þriðju hæð. Dæmatímar fyrir félagsmenn eru svo í gangi á laugadögum og förum við langt með að klára tvær umferðir á laugardaginn.
26.11.2013 | 12:26
Hermann efstur á æfingu
Hermann Aðalsteinsson varð efstur á skákæfingu sem fram fór á Húsavík ámánudagskvöld. Hermann fékk 4 vinninga af 5 mögulegum og tapaði ekki skák. Umhugsunartíminn var 15 mín.
Lokastaðan:
1. Hermann Aðalsteinsson 4 af 5
2-3 Hlynur snær Viðarsson 3
2-3 Viðar Hákonarson 3
4. Ævar Ákason 2,5
5. Sigurbjörn Ásmundsson 2
6. Sighvatur Karlsson 0,5
Næsta skákæfing verður að viku liðinni.
23.11.2013 | 00:09
Hermann 15 mín meistari GM-Hellis á norðursvæði
Hermann Aðalsteinsson vann sigur á 15 mín skákmóti GM-Hellis sem fram fór í kvöld á Laugum. Hermann gerði jafntefli við Jakob Sævar Sigurðsson en vann allar aðrar skákir. Jakob Sævar varð annar og Smári bróðir hans þriðji. Eyþór Kári Ingólfsson vann sigur í flokki 16 ára og yngri, enda eini keppandinn í þeim flokki.
Jakob Sævar, Hermann, Smári og Eyþór fremstur.
Lokastaðan:
1. Hermann Aðalsteinsson 5,5 af 6
2. Jakob Sævar Sigurðsson 4,5
3. Smári Sigurðsson 4
4. Hlynur Snær Viðarsson 2,5
5. Sigurbjörn Ásmundsson 2
6. Ævar Ákason 1,5
7. Eyþór Kári Ingólfsson 1
22.11.2013 | 23:58
Smári efstur á æfingu
Smári Sigurðsson varð efstur á skákæfingu GM-Hellis á norðursvæði sem fram fór á Húsavík sl. mánudagskvöld. Smári leyfði eitt jafntefli en vann aðrar skákir. Tímamörk voru 15 mín á skákina.
Efstu menn:
1 Smári Sigurðsson 6,5 af 7
2. Hermann Aðalsteinsson 5
3. Ævar Ákason 4,5
4-5 Sighvatur Karlsson 4
4-5 Hlynur Snær Viðarsson 2
6. Heimir Bessason 3,5
Næsta skákæfing verður að viku liðinni á Húsavík.
21.11.2013 | 17:17
15 mín skákmót GM-Hellis norðursvæði fer fram annað kvöld
21.11.2013 | 00:19
Hraðkvöld hjá GM Helli mánudaginn 25. nóvember
Hraðkvöld | Breytt s.d. kl. 17:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.11.2013 | 00:18
Örn Leó sigraði á hraðkvöldi
Örn Leó Jóhannsson sigraði öruggleg með 8,5v í níu skákum á hraðkvöldi GM Hellis sem fram fór 18. nóvember sl. Það var aðeins Páll Sigurðsson sem kom í veg fyrir að Örn Leó ynni allar skákirnar en þeir gerðu jafntefli í næst síðustu umferð. Í öðru sæti varð Páll sigurðsson með 6,5v og síðan varð Gauti Páll Jónsson í þriðja sæti með 5,5v og aðeins hærri en Vigfús á stigum. Örn Leó dró svo í lok hraðkvöldsins Jón Gunnar Jónsson í happdrættinu og fengu þeir báðir gjafamiða á Saffran.
Næsta skákkvöld hjá GM Helli í Álfabakka 14a í Mjóddinni verður mánudaginn 25. nóvember kl. 20 og þá verður einnig hraðkvöld.
Röð | Nafn | Vinn. | TB1 | TB2 | TB3 |
1 | Örn Leó Jóhannsson | 8,5 | 33,3 | 0 | 8 |
2 | Páll Sigurðsson | 6,5 | 25 | 0 | 5 |
3 | Gauti Páll Jónsson | 5,5 | 18,5 | 0 | 5 |
4 | Vigfús Vigfússon | 5,5 | 18,3 | 0 | 5 |
5 | Gunnar Nikulásson | 4,5 | 15,3 | 0 | 4 |
6 | Jon Olav Fivelstad | 4 | 16 | 0 | 3 |
7 | Jón Gunnar Jónsson | 4 | 13 | 0 | 4 |
8 | Atli Johann Leósson | 3,5 | 9,25 | 0 | 3 |
9 | Ólafur Guðmarsson | 3 | 8 | 0 | 3 |
10 | Björgvin Kristbergsson | 0 | 0 | 0 | 0 |
Hraðkvöld | Breytt 28.11.2013 kl. 18:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.11.2013 | 00:15
Dawid og Brynjar efstir á æfingu
Á æfingunni sem haldin var 18. nóvember sl. var farið skipt í hópa fengist við ýmis viðfangsefni skákarinnar. Alec Elías, Heimir Páll og Dawid fóru í spánska leikinn, enska leikinn og caro can hver með sinn hóp og síðan voru Lenka og Erla með dæmahóp. Þegar æfingin var hálfnuð voru pizzurnar sóttar og þegar þær voru búnar var fyrst teflt. Umhugsunartíminn var því í styttra lagi eða 5 mínútur og aðeins tefldar 4 umferðir.
Í eldri flokki sigraði Dawid Kolka með fullu húsi eða 4v. Annar varð varð Felix Steinþórsson með 3v og 10 stig, þriðja sætinu náði svo Heimir Páll Ragnarsson með 3v og 7 stig eins og Alec Elías Sigurðarson og þurfti bráðabana til að skilja á milli þeirra. Birgir Ívarsson kom svo næstur einnig með 3v en 6 stig.
Í yngri flokki var Brynjar Haraldsson efstur með 4v eða fullt hús. Jafnir í öðru og þriðja sæti voru Stefán Orri Davíðsson og Ívar Andri Hannesson með 3v og þeir voru einnig jafnir á stigum svo þeir tefldu eina skák um silfrið og bronsið og þar hafði Stefán Orri betur.
Þátttakendur að þessu sinni voru: Dawid Kolka, Felix Steinþórsson, Heimir Páll Ragnarsson, Alec Elías Sigurðarson, Birgir Ívarsson, Óskar Víkingur Davíðsson, Axel Óli Sigurjónsson, Oddur Þór Unnsteinsson, Hilmir Hrafnsson, Halldór Atli Kristjánsson, Jón Otti Sigurjónsson, Andri Gylfason, Sigurjón Daði Harðarson, Egill Úlfarsson, Sigurjón Bjarki Blumenstein, Brynjar Haraldsson, Stefán Orri Davíðsson, Ívar Andri Hannesson, Adam Ómarsson, Sævar Breki Snorrason og Aron Kristinn Jónsson.
Næsta æfing verður svo mánudaginn 25. nóvember nk. og hefst kl. 17.15. Stefnt er að því að skipta þá í tvo flokka eftir aldri og stigum. Æfingarnar eru haldnar í Álfabakka 14a í Mjóddinni, gengið inn á milli Subway og Föken Júlíu og salurinn er á þriðju hæð. Dæmatímar fyrir félagsmenn eru svo í gangi og er þar búið að klára eina umferð og byrjar önnur umferð næsta laugardag 23. nóvember.