Þröstur teflir á alþjóðlegu móti í Englandi

Stórmeistarinn Þröstur Þórhallsson (2436) tekur þessa dagana þátt í alþjóðlegu skákmóti í Basingstoke í Englandi.  Eftir 3 umferðir hefur Þröstur 1½ vinning.

ÍS 2012-13 019 

              Þröstur Þórhallsson lengst til vinstri. 

Í fyrstu umferð nýtti Þröstur sér ákvæði í mótsreglum, sat yfir á meðan hann horfði á leik Arsenal og QPR þar sem fyrrnefnda liðið vann 1-0 sigur með rangstöðumarki, og fékk fyrir það ½ vinning.

Í gær gerði hann svo 2 jafntefli við enska skákmenn.  Í þeirri fyrri við James Holland (2251) og í þeirri síðari við Mark Josse (2147).

Í dag eru tefldar 2 umferðir og mætir Þröstur Englendingum Edmund C Player (2215) í fyrri skák dagsins.

24 skákmenn taka þátt í efsta flokki mótsins og þar af eru 4 stórmeistarar.  Þröstur er nr. 6 í stigaröð keppenda.  Tefldar eru tvær skákir alla keppnisdaga mótsins nema þann fyrsta.

Heimasíða mótsins


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband