Bloggfærslur mánaðarins, mars 2010

Rimman sú !

Sighvatur Karlsson sendi formanni eftirfarandi pistil. Hann er hér með birtur í heild sinni.

Á íslandsmóti skákfélaga, seinni hluta sem haldið var í Rimaskóla helgina 5-6 mars 2010 tefldi ég í B sveit Goðans. Síðdegis á laugardeginum tefldi ég á fjórða borði við Einar S Einarsson fyrrv. formann Skáksambands Íslands sem reynt hafði að manna sína sveit KR d,  með því að senda s.m.s.  út um allar sveitir en klukkan var byrjuð að tifa á þá á þremur borðum.  Það fór nú  fiðringur um mig þegar Einar ákvað að setjast frekar hjá mér en Rúnari á fyrsta borði eða Bjössa á fimmta borði.  Einar hóf leik með drottningarbragði, d 4, leik sem ég leik sjálfur gjarnan þegar ég byrja með hvítt. Nú var það svart maður. Ég hafði vonast til að hann léki e 4 svo að ég gæti beitt Sikileyjarvörn að hætti mafíunnar, eða þannig.  Ég reyndi að koma heilasellunum í gang, fékk mér í nefið og lék R f 6. Svo varð allt svart fyrir augum mér. Kannski voru það kornin. Hann lék e 3. Ég ákvað að opna leið fyrir biskupinn og lék e 6, eðlilegra hefði verið að leika d 5 og síðan e 6.  Það tók mig smá tíma að ná einbeitingunni. Svo var Einar alltaf með einhverjar kúnstir til að koma mér úr meira jafnvægi, tók myndir af stöðunni öðru hvoru og lét sig hverfa út í sal í tíma og ótíma til að líta á gengi sinna manna eins og gengur.  Ég fékk mér kaffi og þá fór Eyjólfur að hressast. Um miðja skák talaði ég í mig kjark til að spyrja hann hvort hann vildi jafntefli þrátt fyrir að hann væri með betri stöðu, minnugur þess að andstæðingur minn í umferðinni áður sagði að ef að ég hefði boðið sér jafntefli þegar allt var í járnum þá hefði hann fallist á það en ég tapaði þeirri skák.  Einar féllst eðlilega ekki á jafnteflisboðið og tapaði skákinni eftir 108 leiki.
Picture 033 
Lok skákarinnar. Eins og sést er svarta peðið að renna óstöðvandi uppí borð.
Þá var einni skák ólokið í salnum en keppendur voru á fimmta hundrað að mig minnir.  Þetta er minnisstæðasta skák sem ég hef teflt á mínum skákferli og kenndi mér hversu mikilvægt er að telja rétt þegar fléttur eru annars vegar og að halda ró sinni þegar drottning er senn í höfn.  Hér á eftir koma 75 leikir en mér auðnaðist ekki að lesa úr restinni því að andstæðingur minn lék svo hratt ásamt mér í tímahraki.  Það var eintómt pár hjá okkur báðum í lokin, engin mynd á því. 
Njótið með mér. Lifi skákin!
Einar S Einarsson hvítt. Sighvatur Karlsson svart.

1.d4 – Rf6.  2.e3 – e6. 3.Bd3 – d5. 4.Rd2 – e5. 5. c3 – Rc6. 6. f4 –cxd. 7. exd – Bd6. 8. Df3 – 0-0. 9. Re2 – Dc7. 10. 0-0 – a6. 11. a4 – b6. 12. Rg3 – Bd7. 13. Rh5 – Be7. 14. Rxf6 – Bxf6. 15. Dh3- g6. 16. Dg3- Bg7. 17. Rf3 – Ra5. 18. Re5-Rb3. 19. Ha2-Rxc1. 20. Hxc1 – a5. 21. b3 – Dd6. 22. Rx d7 – Dxd7. 23. B b5 – Dd6. 24. Df2 – Hac8. 25. Hac2 – f6. 26. c4 – dxc4. 27. Bxc4 – f5. 28. Hcd1 – Kh8. 29. Hcd2 – B h6. 30. g3 – g5. 31. fxg5 – Bxg5. 32. He2 – Hce8. 33. Hde1 –B f6. 34. Hed1 –Hd8. 35. Hed2 – Bg5. 36.  Hd3 –f4. 37. g4 – De7. 38. De2 –Hf6. 39. De5- h6. 40. d5 –Dc5+. 41. K f1 – Bh4. 42. Hf3 – Dd6. 43. Dd4 – e5. 44. De4 – Hg8. 45. h3 – h5. 46. Bd3 –Hg7. 47. Hc1 – hxg4. 48. hxg – Hfg6. 49. Hc6.

mynd 1 

Óvæntur leikur en brátt sá ég við honum þegar himnarnir opnuðust og fléttan varð til sem gerir skákina svo skemmtilega. Ég ákvað að fórna drottningunni fyrir hrók!    Dxc6 !. . Einar hugsaði sig um, lengi:  50. dxDc6 – Hxg4. 51. Dxe5 – Hg1+ 52. Ke2 – He1 + . 53. Kd2 – HxDe5. 

chess diagram.jpg 2

Fléttan gekk upp. Ég var kominn með skiptamun yfir, meira að segja hrók. 54. Hh3 – Hg2+.. 55.  Kc3 – Hg4. 56. Kc4 – f3. 57. Kc3 – Hc5+. 58. Kd2 – f2. Hér fór um mig fiðringur út í tær og andstæðingurinn kvartaði yfir því að ég væri að hrista borðið. 59.  Bf1 –Hxc6.

Skynsamlegt að taka peðið, held ég. 60. Ke2 –Kg7,

ég vildi losa um biskupinn minn á a línunni. 61. Kf3 – Hd4. 62. Bc4.

chess diagram.jpg 4 

Þarna hefði ég átt að hugsa en það gerði ég ekki. Í stað þess að drepa biskupinn með hróknum og vekja drottninguna í kjölfarið þá lék ég henni af mér í stundaræsingi.

– f1=D. 63. BxDf1. – Hc3+  64. Kg2 – Hd2 +. 65. Kh1 – Bf6. 66. Hxc3 – Bxc3. 67.  Bc4 – Hd1+ 68. Kg2 – Kh6. 69. Kf3 – Kg5. 70. Ke2 – Hd2+. 71. Ke3 – Bb4. 72. Ke4 – Bc5. 73. Ke5 – Hf2. 74. Kd5 – Hf8. 75. Bd3 – Kf4........  

chess diagram.jpg 5

Mér tókst að vekja upp drottningu með öðru peðinu og berstrípaði með henni hvíta kónginn sem reyndi lengi vel að koma sér í pattstöðu, allt fram í 108 leik. Þá loks játaði hann sig sigraðan. Flestir hefðu nú játað sig sigraða eftir 53 leik svarts.. En svona er lífið við skákborðið. Þar skiptast á skin og skúrir, undir og yfir og allt um kring.  

Húsavík. 9. mars 2010. Sighvatur Karlsson.

Skákina má sjá hér:
http://godinnchess.blogspot.com/2010/03/einar-sighvatur-karlsson-deildarkeppnin.html  

 

Íslandsmót skákfélaga. Pistill formanns.

Þá er Íslandsmóti skákfélaga 2009-2010 lokið. Þetta var í 4. skiptið sem skákfélagið Goðinn sendir lið til keppni á íslandsmótið og alltaf hefur okkur tekist að bæta árangurinn ár frá ári. Engin undantekning varð á því nú.  Vonir stóðu til að A-liðið næði í eitt af þremur efstu sætunum í 4. deildinni en það gekk ekki eftir.  Eftir tap gegn SR-b í lokaumferðinni voru vonir okkar um verðlauna sæti að engu. A-liðið endaði í 5. sæti með 26 vinninga. Víkingasveitin vann 4. deildina en þeir fengu 29,5 vinninga.

018

                    Þessi bikar gekk okkur úr greipum !

B-liðið átti ágæta spretti og endaði í 20. sæti með 20 vinninga sem er betri árangur en í fyrra þegar Goðinn sendi í fyrsta skipti tvö lið til keppni á mótið. Reyndar voru sumir vinningarnir sem B-liðið fékk í ódýrari kantinum, því enn og aftur kom það fyrir að andstæðingar okkar gátu ekki fullmannað sín lið og er það með hreinum ólíkindum hve illa sum félög standa sig í liðstjórn. 

Þegar félög af höfuðborgarsvæðinu senda 5-6 lið til keppni hefði maður haldið að auðvelt ætti að vera að skipuleggja hverjir tefla, í hvaða liði og í hverri umferð og hafa til taks einhverja varamenn ef einhverjir forfallast með skömmum fyrirvara. Eins ætti að vera auðvelt að færa keppendur upp úr neðstu sveit svo að ekki vanti keppendur í sveitir þar fyrir ofan. Það er ömulegt að ferðast langar leiðir til þess að taka þátt í skemmtilegu skákmóti og fá svo engan til þess að tefla við trekk í trekk.  Af þeim 20 vinningum sem B-liðið fékk voru 7 þeirra þannig til komnir ! 
Þetta er til skammar og ber vott um lélega liðsstjórn. 

Árangur einstakra liðsmanna félagsins.

                                       A-liðið.

002Erlingur Þorsteinsson tefldi á 1. borði. Erlingur vann eina skák, gerði eitt jafntefli og tapaði einni skák. Erlingur fékk sterkustu andstæðingana og leiddi sveitina með öruggum hætti. Erlingur landaði alls 4,5 vinningum úr 7 skákum og tapaði einugis einni skák, fyrir Ólafi Þórssyni (2204) í 5. umferð. Erlingur fékk næst flesta vinninga liðamanna A-liðsins. Mjög góð frammistaða eins og búast mátti við hjá Erlingi. 

 

006Jón Þorvaldsson tefldi á 2. borði og landaði 2 vinningum í sínum fyrstu skákum fyrir félagið. Hann vann eina skák og gerði tvö jantefli.  Flott frammistaða hjá Jóni og sérstaklega þegar haft er í huga að Jón hafði ekki teflt kappskák í 10 ár þar til nú um helgina. Jón hefur reynst mikill happafengur fyrir Goðann og á eftir að skila félaginu miklu í framtíðinni. Það er alveg á hreinu.

 

 

007Sindri Guðjónsson tefldi á 3. borði og mætti "útkeyrður" til keppni alla leið frá Ísafirði, korter fyrir mót. Sindri gerði tvö jafntefli en tapaði í síðustu umferð. Sindri fékk alls 3,5 vinninga úr 6 skákum og tapaði bara einni skák.

 

 

005Sigurður Jón Gunnarsson. Tefldi á 4. borði. Sigurður vann tvær skákir en tapaði einni. Sigurður Jón stóð sig frábærlega í mótinu. Hann tefldi allar skákirnar 7 og fékk 5 vinninga samtals. Sigurður vann alls 4 skákir gerði tvö jafntefli og tapaði aðeins einni skák. Af öðrum ólöstuðum stóð Sigurður sig best allra í A-liðinu og undirstrikaði það vel hve mikill fengur var í því að fá hann til liðs við félagið í fyrra.

 

004Jakob Sævar Sigurðsson tefldi á 5. borði. Jakob gerði eitt jafntefli en tapaði tveimur skákum. Jakob fékk alls 3 vinninga úr 7 skákum samanlagt.

 

 

 

003Smári Sigurðsson tefldi á 6. borði. Smári vann eina skák og gerði tvö jafntefli. Alls fékk Smári 4 vinninga úr 7 skákum og tapaði aðeins einni skák.

 

 

 

Barði Einarsson tefldi ekkert með núna og Pétur Gíslason tefldi eina skák í B-liðinu.

                                    B-liðið

Pétur Gíslason. Tefldi á 1. borði í 5. umferð og vann þá skák. Pétur tefldi ekki í 6 og 7. umferð.
Pétur stóð sig frábærlega á mótinu, því hann fékk alls 4 vinninga úr 5 skákum og tapaði því aðeins einni skák.

011Rúnar Ísleifsson. Tefldi á 1. borði í 6 og 7. umferð. Missti af fyrri hlutanum en lét til sín taka í seinni hlutanum. Rúnar vann eina skák og gerði eitt jafntefli og fékk svo einn vinning gefins í síðustu umferð því enginn andstæðingur var til staðar. Rúnar landaði því 2,5 vinningum úr þremur skákum.

 

 

Ævar Ákason. Tefldi á 3. borði í 5. umferð en á 2. broði í 6 og 7 umferð. Ævar vann eina skák, gerði eitt jafntefli og tapaði einni skák. Ævar landaði samtals 2,5 vinningum úr 7 skákum.

009Hermann Aðalsteinsson. Tefldi á 4. borði í 5. umferð en á 3. borði í 6 og 7. umferð. Hermann fékk einn vinning gefins í 5. umferð því enginn andstæðingur var til staðar. Hermann tapaði báðum skákum sínum í 6 og 7. umferð. Hermann fékk alls 3 vinninga úr 6 skákum, en tveir þeirra voru gefins því Hermann var óheppin með það að andstæðingar hans mættu ekki til leiks í tveimur skákum af 6.

 

Sighvatur Karlsson. Tefldi á 5. borði í 5. umferð en á 4. borði í 6 og 7. umferð. Sighvatur vann tvær skákir en tapaði einni. Líkt og Hermann fékk Sighvatur engann andstæðing í 5. umferð og vann því léttan sigur. Sighvatur þurfti þó að hafa öllu meira fyrir sigri sínum í síðustu umferð, því sú skák fór í 108 leiki ! Sighvatur þurfti að hafa fyrir því að máta andstæðing sinn þrátt fyrir það að hafa verið með unnið frá c.a 5o. leik og kolunnið frá 80 leik, því þá átti andstæðingur hann aðeins kóng og tvö peð en Sighvatur hrók og biskup auk tveggja peða og síðar í skákinni vakti Sighvatur upp drottningu og var þá kóngur andstæðingsins einn eftir. Samt gaf hann ekki skákina ! Skákin endað þó með því að Sighvatur mátaði sinn andstæðing í 108. leik !

Sigurbjörn Ásmundsson.  Tefldi á 6. borði í 1. umferð en á 5. borði í 6 og 7. umferð. Sigurbjörn tapaði tveimur skákum en vann eina létt þar sem enginn anstæðingur var til staðar. Hann var því jafn óheppinn og Hermann hvað það varðar. Sigurbjörn fékk alls tvo vinninga úr 6 skákum.

Einar Már Júlíusson. Tefldi á 6. borði í 6 og 7. umferð. Einar tapaði báðum sínum skákum. Einar kom inn sem varamaður í B-liðið. Einar tefldi ekkert í fyrri hlutanum.

Einar Garðar Hjaltason og Brandur þorgrímsson tefldu ekki í seinni hlutanum.

                                Framhaldið.

Þrátt fyrir vonbrigði í síðustu umferð er hugur í félagsmönnum og ætlar félagið að bæta í fyrir næsta Íslandsmót, á komandi hausti. Við erum þegar farnir að huga að því að styrkja félagið með ýmsum hætti og skýrist það á næstu vikum og mánuðum.  Vonir standa til þess að hægt verði að bæta þriðja liðinu við næsta haust sem verði að mestu skipað unglinum sem æft hafa stýft í vetur.

014
Ég tel það fullkomlega raunhæft að félagið stefni á sigur í 4. deildinni á næsta ári. Eins er ekki ólíklegt að liðum í 3. deild verði fjölgað áður en keppni hefst næsta haust og þá tefli A-liðið í 3. deild að ári.  Fari svo er það að sjálfsögðu mikið fagnaðarefni og löngu tímabær breyting til hins betra á fyrirkomulagi í deildarkeppninni. Þær breytingar verða vonandi samþykktar á aðalfundi SÍ í vor.

Að lokum langar mig til að þakka öllum þeim félögum sem tefldu fyrir Goðann í Íslandsmótinu, því allir lögðu mikið á sig til þess að vera og með og þá sérstaklega Sindri Guðjónsson sem hefur ferðast mest allra til þess að tefla fyrir hönd félagsins. Frá Þórshöfn í fyrri hlutanum og frá Ísafirði í seinni hlutanum.

Ekki minni þakkir á Jón Þorvaldsson skilið fyrir vasklega framgöngu fyrir hönd félagsins og glæsilegt kvöldverðarboð á heimili sínu fyrir allt keppnisliðið á föstudagkvöldið !

Hermann Aðalsteinsson formaður. Myndir: Sigurbjörn Ásmundsson.

 


A-liðið í 5. sæti í 4. deild.

A-lið Goðans endaði í 5. sæti í 4. deildinni, eftir tap fyrir SR-b, 2,5-3,5, í 7. og síðustu umferð á Íslandsmóti skákfélaga nú í kvöld.  Sigurður Jón Gunnarsson vann sinn andstæðing, Erlingur Þorsteinsson, Jón Þorvaldsson og Smári Sigurðsson gerðu jafntefli, en aðrar skákir töpuðust.

B-liðið gerði jafntefli við KR-d 3-3. Rúnar og Sigurbjörn unnu auðvelda sigra því engir andstæðingar voru til staðar og Sighvatur vann sinn andstæðing í maraþonskák sem fór í 108 leiki. Aðrar skákir töpuðust.

Lokastaðan í 4. deild:

1Víkingakl. a29,510
2TV b28,512
3KR b2812
4TV c27,512
5Goðinn a2610
6Sf. Vinjar257
7SR b24,510
8SA c24,510
9KR c249
10TR d249
11Fjölnir b247
12Austurland237
13Snæfellsbær22,57
14Sauðárkrókur228
15Víkingakl. b227
16Siglufjörður218
17UMFL216
18Bolungarvík d216
19UMSB20,55
20Goðinn b207
21SA d206
22Hellir e204
23KR d19,55
24SSON b186
25KR e16,55
26H-TG155
27Fjölnir c155
28TR f153
29TR e14,52
30Hellir g147
31Hellir f12,54
32Ósk11,5

3

Pistill frá formanni er væntanlegur á morgun eða á mánudag.

Mótið á chess-results
http://chess-results.com/tnr25748.aspx?art=20&snr=13&lan=1&fed=Goðin&flag=30&m=-1&wi=1000


Góður sigur hjá A-sveitinni.

A-sveit Goðans vann góðan 5-1 sigur á B-liði Víkingasveiarinnar í 6.umferð í dag. Erlingur, Jón,
Sigurður og Smári unnu sína andstæðinga og Sindri og Jakob gerðu jafntefli.

B-sveitni tapaði fyrir TV-c 1-5. Rúnar og Ævar gerðu jafntefli, en aðrar skákir töpuðust.

Í 7. umferð teflir A-sveitin við SR-b og með hagstæðum úrslitum gæti A-sveitin krækt í eitt af 3 efstu sætunum. 

Stöðuna í 4. deild má sjá hér:
http://chess-results.com/tnr25748.aspx?art=0&rd=6&lan=1&flag=30&m=-1&wi=1000


Tap hjá A-sveit. Sigur hjá B-sveit.

A-sveit Goðans tapði fyrir Víkingasveitinni 1,5 - 4,5. Jón Þorvaldsson, Sindri Guðjónsson og Smári Sigurðsson gerðu jafntefli, en aðrar skákir töpuðust.

B-sveitin vann góðan sigur á liði TR-e 5 - 1. Pétur, Rúnar, Ævar, Hermann og Sighvatur unnu sínar skákir, en Sigurbjörn tapaði. Hermann og Sighvatur unnu sínar skákr eftir aðeins 30 mín því enginn andstæðingur mætti til leiks. 

Ekki er ljóst hverjir andstæðinga liðanna verða á morgun.


Íslandsmót skákfélaga seinni hluti, hefst á morgun.

Seinni hluti Íslandsmóts skákfélaga  hefst kl 20:00 á morgun, föstudag, þegar 5. umferð verður tefld.  Mótið fer fram í Rimaskóla í Reykjavík.  6. umferð verður svo tefld kl 11:00 á laugardag og 7. og síðasta umferð kl 17:00 sama dag.

A-lið Goðans er sem stendur í 2 sæti í 4. deildinni aðeins hálfum vinningi neðar en Víkingasveitin, sem verður einmitt andstæðingur A-liðsins á morgun. A-liðið á góða möguleika á að vinna sæti í 3. deild að ári nái liðið að halda fengnum hlut, að halda amk. öðru sætinu , því tvö efstu liðin í 4. deild fara beint upp í 3. deild að ári. Ljóst er þó að baráttan verður hörð um efstu sætin því 3 önnur lið eru með jafn marga vinninga og A-lið Goðans og ekkert má útaf bregða eigi markmið félagsins, að vinna sig upp um deild, að nást.

Staða efstu liða í 4. deild.

Rk.SNoTeamGames  +   =   -  TB1  TB2  TB3 
19Víkingakl. a430117,561427
213Goðinn a440017,081398
325KR b440017,081376
422Víkingakl. b431017,071368
526Austurland421117,051387
612TV b430116,561345

B-lið Goðans teflir við TR-e-sveit í 5. umferð. B-lið Goðans er sem stendur í 21. sæti með 11 vinninga af 32 liðum og litlar líkur eru á að B-liðið blandi sér í topp baráttuna að þessu sinni. B-liðið stefnir þó að því að ná í eitt af 8 efstu sætunum, því hugsanlegt er að keppnisliðunum í 3. deild verði fjölgað áður en keppni hefst aftur næsta haust. Verði það ákveðið í vor, er líklegt að 8 efstu liðin í 4. deildinni á þessu keppnistímabili verði færð beint upp í 3. deild.

Fréttir af gengi liðanna verða að sjálfsögðu birtar hér á síðunni um helgina og hugsanlegt er að einhverjar skákir úr deildarkeppninni verði slegnar inn og eftir atvikum birtar hér: http://godinnchess.blogspot.com/

Þeir félagsmenn sem heima sitja, geta því fylgst með spennandi keppni hér á síðunni.


Pétur Efstur á æfingu.

Pétur Gíslason varð efstur á skákæfingu sem fram fór á Húsavík í kvöld. Ævar var sá eini sem náði vinninga gegn Pétri, en aðrar skákir vann hann. Tefldar voru hraðskákir (5 mín)

Pétur Gíslason

                       Pétur Gíslason.

Úrslit Kvöldsins:

1.     Pétur Gíslason                 7 vinn af 8 mögul.
2-3   Smári Sigurðsson            6,5
2-3   Ævar Ákason                   6,5
4.     Sigurbjörn Ásmundsson  5
5-6  Hermann Aðalsteinsson   3
5-6  Valur Heiðar Einarsson     3
7-8  Sighvatur Karlsson           2
7-8  Hlynur Snær Viðarsson     2
9      Snorri Hallgrímsson         1

Næsta skákæfing verður á Laugum að viku liðinni. H.A.


Tap í síðustu umferð.

Erlingur Þorsteinsson tapaði fyrir Antoni Fiona Stein frá Luxemburg í 9. og síðustu umferð MP Reykjavík Open í dag. Erlingur fékk 4 vinninga af 9 mögulegum í mótinu og hafnaði í 64. sæti af 104 keppendum.

Lokastöðuna má sjá hér.
http://chess-results.com/tnr29384.aspx?art=1&rd=9&lan=1&flag=30&m=-1&wi=1000

Skák Erlings og Antoni er hér:
http://godinnchess.blogspot.com/2010/02/skakir-erlings-orsteinssonar-ur-mp.html


Sigur í 8. umferð.

Erlingur þorsteinsson vann sigur á Juergen Kleinert og er í 55 sæti með 4 vinninga af 8 mögulegum, þegar einni umferð er ólokið á MP Reykjavík Open.

9. og síðasta umferð verur tefld kl 13:00 á morgun.  Þá hefur Erlingur hvítt á Antoni Fiona Steil (2198) sem er alþóðlegur meistari kvenna frá Lúxemborg.

Skák Erlings og Juergen er hér:
http://godinnchess.blogspot.com/2010/02/skakir-erlings-orsteinssonar-ur-mp.html


Sigur í 7. umferð.

Erlingur Þorsteinsson vann Hallgerði Þorsteinsdóttur í 7. umferð á MP Reykjavík Open í dag.
Erlingur er í 63. sæti með 3 vinninga þegar tvær umferðir eru eftir.

8. umferð hefst kl 15:30 á morgun. Þá hefur Erlingur svart gegn Juergen Kleinert (2004) frá Þýskalandi. 

Skák Erlings og Hallgerðar er hér http://godinnchess.blogspot.com/  


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband