Bloggfærslur mánaðarins, desember 2007
31.12.2007 | 00:40
Ágætur árangur á Íslandsmótinu í netskák.
Þrír félagsmenn úr Goðanum tóku þátt í Íslandsmótinu í netskák sem fram fór í kvöld á ICC.
Einar Garðar Hjaltason og Tómas Veigar Sigurðarson urðu í 19-25 sæti. Þeir fengu báðir 5 vinninga af 9 mögulegum. Jakob Sævar Sigurðsson varð í sæti 48-52. með 3 vinninga. Stefán Kristjánsson varð Íslandsmeistari með 7,5 vinninga. Alls kepptu 57 skákmenn á mótinu.
Einar Garðar fékk fyrstu verðlaun, (5000 krónur) skákmanna með undir 1800 skákstigum. Tefldar voru skákir með 4 mín + 2 sek/á leik, á mann. H.A.
Okkar menn | Breytt 28.8.2008 kl. 11:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.12.2007 | 11:00
Ný skákstig.
FIDE skákstiga listinn var gefin út í dag og tekur hann gildi 1 janúar 2008. Okkar menn, Tómas Veigar og Jakob Sævar, lækka báðir frá síðasta lista. Tómas lækkar um 19 stig og er með 2056 stig en Jakob lækkar um 10 stig er því með 1827 stig nú.
Íslensk atskákstig voru gefin út nú nýlega og ber þar helst til tíðinda að Sigurbjörn Ásmundsson kemur nýr inná listann með 1385 stig og Rúnar Ísleifsson hækkar um 25 stig og er með 1735 stig
Nýr Íslenskur skákstigalisti er ekki enn kominn út en hans er að vænta innan fárra daga.
Stigalistarnir verða birtir hér þegar Íslenski listinn liggur fyrir. H.A.
Skákstig | Breytt 28.8.2008 kl. 11:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.12.2007 | 10:21
Úrslit úr mótum hjá S.A.
Tómas Veigar varð í öðru sæti á fischer-klukku móti sem S.A. hélt þann 20 desember. Tómas fékk 10 vinninga af 14 mögulegum. Gylfi Þórhallsson varð efstur með 11 vinninga.
Jólahraðskákmót Skákfélags Akureyrar fór fram í gær. Tómas Veigar fékk 5 vinninga. Sigurður Arnarsson varð efstur á mótinu með 13 vinninga af 14 mögulegum. H.A.
Okkar menn | Breytt 28.8.2008 kl. 11:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.12.2007 | 20:41
Gameknot mótið er byrjað.
Nú í dag setti ég af stað skákmót á Gameknot skákvefnum. Allir skráðir félagar í Goðanum sem og eru líka skráðir á Gameknot geta verið með. Mótið er fyrir 11 keppendur og tefla allir við alla tvær skákir, eða samtals 20 skákir hver. Allir tefla 4 eða 5 skákir í einu. Það er laust pláss fyrir 4 keppendur, þannig að þeir sem áhuga hafa geta skráð sig inn á Gameknot skákvefinn og haft síðan samband við formann og gefið upp notendanafnið sitt og þá sendi ég boð um þátttöku til viðkomandi í mótið. Líklegt er að mótið taki 3-6 mánuði.
Að sjálfsögðu veiti ég allar upplýsingar um mót þetta, ef einhverjar spurningar vakna, og aðstoða áhugasama við að skrá sig til keppni. Mót þetta er tilvalið fyrir þá félagsmenn sem komast að öllu jöfnu ekki á æfingar eða á mót hjá félaginu. H.A.
Slóðin er: http://www.gameknot.com
Ýmislegt | Breytt 28.8.2008 kl. 12:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.12.2007 | 23:57
Tómas Veigar Hraðskákmeistari Goðans 2007
Tómas Veigar Sigurðarson varð efstur á Hraðskákmóti skákfélagsins Goðans sem fram fór á Fosshóli í Þingeyjarsveit í kvöld og er því Hraðskákmeistari félagsins 2007. Tómas fékk 12 vinninga af 13 mögulegum. Baldur Daníelsson var sá eini sem náði að vinna Tómas. Smári Sigurðsson, hraðskákmeistari Goðans frá því í fyrra, varð annar af félagsmönnum Goðans með 9 vinninga og Rúnar Ísleifsson varð þriðji með 8,5 vinninga. Alls tóku 14 keppendur þátt í mótinu. Úrslit urðu eftirfarandi :
1. Tómas Veigar Sigurðarson 12 af 13 mögul. gull
2. Sigurður Eiríksson (S.A.) 11
3. Sindri Guðjónsson (T.G.) 9,5
4. Smári Sigurðssson 9 silfur
5. Rúnar Ísleifsson 8,5 brons
6. Jakob Sævar Sigurðsson 8
7. Baldur Daníelsson 7,5
8. Sigurbjörn Ásmundsson 6
9. Hermann Aðalsteinsson 5
10. Ármann Olgeirsson 4,5
11. Jóhann Sigurðsson 3,5
12. Heimir Bessason 3
13. Benedikt Þór Jóhannsson 2 gull
14. Ketill Tryggvason 1,5
Benedikt Þór sigraði í flokki 16 ára og yngri með 2 vinninga. Sigurður og Sindri kepptu sem gestir á mótinu þar sem þeir eru ekki félagsmenn í Goðanum. H.A.
Mótaúrslit | Breytt 28.8.2008 kl. 11:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
16.12.2007 | 20:31
Rúnar í 5-6 sæti á Akureyri.
Okkar menn | Breytt 28.8.2008 kl. 11:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.12.2007 | 20:27
Jakob í 16. sæti.
Jakob Sævar tapaði í 7. og síðustu umferð fyrir Fonseca Rodriquez (2057) í dag. Jakob endaði í 16. sæti af 19. Jakob hafði svart. Jakob lenti í tímahraki og lék af sér manni og gaf þá skákina.
Sórmeistarinn Henrik Danielsen varð efstur á mótinu með 6 vinninga.
Okkar menn | Breytt 28.8.2008 kl. 11:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.12.2007 | 17:11
Tap í næst síðustu umferð.
Okkar menn | Breytt 28.8.2008 kl. 11:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.12.2007 | 20:31
Góður sigur hjá Jakob.
Jakob Sævar vann Daníel Pétursson í 5 umferð nú í kvöld og er sem stendur í 12. sæti með 2 vinninga. 6. umferð verður tefld kl 11:00 á morgun sunnudag og þá verður Dagur Andri Friðgeirsson (1804) andstæðingur Jakobs. Jakob verður með svart.
Ratingperformancið hjá Jakob er uppá 1944 stig eftir 3 skákir.
Okkar menn | Breytt 28.8.2008 kl. 11:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.12.2007 | 15:22
Tap fyrir Sverri.
Okkar menn | Breytt 28.8.2008 kl. 11:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)