Jakob Sævar og Jón Aðalsteinn unnu sigur í Árbót

Jakob Sævar Sigurðsson og Jón Aðalsteinn Hermannsson unnu sigur á skákþingi GM-Hellis á norðursvæði sem lauk í Árbót í Aðaldal nú í kvöld. Jakob Sævar vann öruggan sigur með 5,5 vinninga af 6 mögulegum í eldri flokki. Tómas Veigar Sigurðarson varð í öðru sæti með 4,5 vinninga og Smári Sigurðsson og Sigurður G Daníelsson urðu jafnir í þriðja sæti með fjóra vinninga, en Smári varð hærri á stigum. Smári hreppti því önnur verðlaun og Sigurður Daníelsson þriðju verðlaun þar sem Tómas keppti sem gestur á mótinu. Úrslit í 5. umferð og 6. umferð.

2009-10-15 01.10.10 

             Smári, Jakob og Tómas Veigar. 

Lokastaðan: 

 Sigurðsson Jakob Sævar1824GM Hellir5.520.0  13.0
 Sigurðarson Tómas Veigar1990Víkingakl. 4.523.015.0
 Sigurðsson Smári1913GM Hellir4.0  20.513.0
 Daníelsson Sigurður G1971GM Hellir4.020.513.0
 Ásmundsson Sigurbjörn1185  GM Hellir3.515.010.5
 Viðarsson Hlynur Snær1071GM Hellir3.515.010.5
 Aðalsteinsson Hermann1333GM Hellir2.521.516.0
 Akason Aevar1456GM-Hellir2.520.513.5
 Hermannsson Jón Aðalsteinn0GM Hellir2.516.010.5
 Kristjánsson Bjarni Jón1061GM Hellir2.014.510.5
 Statkiewicz Jakub Piotr0GM Hellir1.514.010.5
 Þórarinsson Helgi James0GM Hellir0.015.510.5

 

Jón Aðalsteinn vann sigur í flokki 16 ára og yngri með 2,5 vinninga, Bjarni Jón Kristjánsson varð annar með 2 vinninga og Jakub Piotr Statkiewicz varð þriðji með 1,5 vinninga.

IMG 3137 

             Bjarni Jón, Jón Aðalsteinn og Jakub. 

Mótið á chess-results. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband