Smári Sigurðsson héraðsmeistari HSÞ 2011

Smári Sigurðsson varð í kvöld Héraðsmeistari HSÞ í skák 2011. Smári fékk 6 vinninga af 7 mögulegum. Smári gerði jafntefli við Pétur Gíslason og Benedikt Þór Jóhannsson. Aðrar skákir vann Smári. Rúnar Ísleifsson varð í öðru sæti með 5,5 vinninga og Pétur Gíslason varð í þriðja sæti með 5 vinninga. Tefldar voru 7 umferðir eftir monrad-kerfi og var umhugsunartíminn 10 mín + 5 sek/á leik. Góð frammistaða Snorra Hallgrímssonar og Benedikts Þór Jóhannssonar vakti athygli og voru þeir að vinna marga góða sigra gegn stigahærri andstæðingum á mótinu. 

HSÞ 2011 002

             Smári Sigurðsson héraðsmeistari HSÞ 2011. 

Lokastaðan:

1      Smári Sigurðsson               6        21.0  28.5   25.5
2      Rúnar Ísleifsson                 5.5      20.5  27.5   21.5
3      Pétur Gíslason                    5        20.5  27.5   20.5
4-5   Snorri Hallgrímsson            4.5      20.5  27.5   17.5
         Benedikt Þór Jóhannsson  4.5      18.0  25.0   17.5
6       Hermann Aðalsteinsson     4        18.0  25.0   16.0
7       Heimir Bessason                3.5      17.5  24.0   13.5
8       Ævar Ákason                      3        17.5  24.5   13.0
9-10  Ármann Olgeirsson            2        15.0  22.0   10.0
          Valur Heiðar Einarsson      2        14.0  19.5    8.0
11-12 Sigurbjörn Ásmundson      1        15.5  22.0    1.0
          Hlynur Snær Viðarsson      1        15.0  21.0    4.0


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég óska Smára innilega til hamingju með glæsilegan sigur á Héraðsmótinu og Snorra líka til hamingju með sinn góða árangur. Áfram....allir...Goðar.

Sighvatur Karlsson (IP-tala skráð) 29.3.2011 kl. 00:40

2 identicon

Tek undir hamingjuóskir til Smára og Snorra og sendi öllum þátttakendum og öðrum félögum bestu kveðjur héðan úr SV-Goðorði.

Goðinn vekur æ meiri athygli enda er þar á ferð einvalalið undir öruggri forystu Hermanns allsherjargoða.

Jón Þorvaldsson (IP-tala skráð) 29.3.2011 kl. 20:50

3 Smámynd: Skákfélagið Goðinn

Til hamingju Smári með titilinn.  Okkar bestu kveðjur suður til þín Jón og allra hinna í SV-Goðorði.

Skákfélagið Goðinn, 30.3.2011 kl. 00:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband