Jólapakkamót GM Hellis fer fram í Ráðhúsinu laugardaginn 21. desember.

Jólapakkaskákmót GM Hellis verður haldið laugardaginn 21. desember nk. í Ráðhúsi Reykjavíkur. Mótið hefst kl. 13 og er ókeypis á mótið. Mótið er fyrir börn og unglinga og fer nú fram í 16. skipti en það var fyrst haldið fyrir jólin 1996. Síðan hefur það verið haldið nánast á hverju ári og hefur alltaf verið eitt fjölmennasta skákmót ársins.
 
Keppt verður í allt að 5 flokkum: Flokki fæddra 1998-2000, flokki fæddra 2001-2002, flokki fæddra 2003-2004 og flokki fæddra 2005 og síðar og peðaskák fyrir þau yngstu (2007 og yngri). Tefldar verða 5 umferðir með 10 mínútna umhugsunartíma á mann. Jólapakkar eru í verðlaun fyrir 3 efstu sætin í hverjum aldursflokki fyrir sig fyrir bæði drengi og stúlkur. Auk þess verður happdrætti um 3 jólapakka í hverjum aldursflokki fyrir sig.  Skráning á mótið fer fram hér á heimasíðu GM Hellis og er skráningarform efst á síðunni. Einnig er hægt að skrá sig á http://www.skak.blog.is/blog/skak/

Upplýsingar um skráða keppendur er að finna hér.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband