30.10.2013 | 17:10
Páll efstur á hraðkvöldi GM-Hellis
Páll Andrason sigraði á hraðkvöldi GM Hellis suðursvæði sem haldið var 28. október sl. Páll fékk sex vinninga í sex skákum. Það voru Örn Leó og Ólafur Guðmarsson sem náðu jafntefli við Pál en hann sýndi mikla hörku í tímahrakinu og halaði þá inn ófáa vinninga. Annar var Örn Leó Jóhannsson með 5,5v en þeir Páll fylgdust að lengi vel Þangað til Erni Leó hlekktist á í lok skákarinnar gegn Vigfúsi í næst síðustu umferð. Þriðja sætinu náði svo Vigfús Ó. Vigfússon með 5v eins og Jóhanna Björg Jóhannsdóttir en Vigfús var hærri á stigum.
Páll Andrason dró í happdrættinu og það var tala Björgvins Kristbergssonar sem kom upp og fékk hann því gjafamiða á Saffran eins og Páll.
Næsta skákkvöld í félagsheimili GM Hellis verður mánudaginn 4. nóvember kl. 20. Þá verður einnig hraðkvöld.
Lokastaðan á hraðkvöldinu:
Röð | Nafn | Vinn. | TB1 | TB2 | TB3 |
1 | Páll Andrason | 6 | 29 | 21 | 25 |
2 | Örn Leó Jóhannsson | 5,5 | 26 | 20 | 18 |
3 | Vigfús Vigfússon | 5 | 30 | 21 | 19 |
4 | Jóhann Björg Jóhannsdóttir | 5 | 26 | 20 | 15 |
5 | Kristófer Ómarsson | 4 | 27 | 19 | 12 |
6 | Ólafur Guðmarsson | 4 | 25 | 17 | 13 |
7 | Elsa María Kristínardóttir | 3,5 | 25 | 19 | 7 |
8 | Hermann Ragnarsson | 3,5 | 21 | 16 | 9,3 |
9 | Hjálmar Sigurvaldason | 3,5 | 20 | 14 | 6,8 |
10 | Halldór Pálsson | 3 | 27 | 20 | 7 |
11 | Gunnar Nikulásson | 3 | 23 | 17 | 6 |
12 | Björgvin Kristbergsson | 2 | 18 | 14 | 2 |
13 | Hörður Jónasson | 1 | 23 | 16 | 0,5 |
Mótið á Chess-Results
Flokkur: Spil og leikir | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.