4.3.2012 | 00:54
Goðinn meistari í 2. deild !
A-sveit Goðans vann ótrúlegan sigur í 2. deild í gærkvöld þegar liðið vann stór sigur á A-sveit KR 6-0. Á sama tíma tapaði helsti keppinautur Goðans, Víkingaklúbburinn, stórt fyrir B-sveit Hellis. Fyrir lokaumferðina í gærkvöld hafði Víkingaklúbburinn 3 vinninga forskot á Goðann og voru líkurnar því nánast engar á öðru en sigri Víkingaklúbbsins í 2. deild. En annað kom á daginn.
Þetta er fyrsti meistaratitill Goðans frá stofnun félagsins árið 2005.
Með sigrinum tryggði Goðinn sér sæti í 1. deild að ári, fyrsta sinn og teflir því meðal þeirra bestu á næsta keppnistímabili.
Hermann Aðalsteinsson formaður, með bikarinn fyrir sigur í 2. deild. Björn Þorsteinsson, Jón Þorvaldsson, Tómas Björnsson, Þröstur Árnason og Sigurður Daði Sigfússon, sem fór hamförum á fyrsta borði. Á myndina vantar þá Ásgeir Ásbjörnsson, Einar Hjalta Jensson, Hlíðar Þór Hreinsson og Kristján Eðvarðsson.
Lokastaðan í 2. deild.
1. Goðinn A 32.0 vinningar.
2. Víkingaklúbburinn A 30.0
3. Hellir 20.0
4. Haukar 19.5
5. TR B 19.5
6. SR A 17.5
7. KR A 15.0
8. TA 14.5
Rúnar. Sigurður Jón, Jakob, Smári, Jón, Páll, Hermann, Sigurður Daði, Björn og Þröstur.
B-lið Goðans var hársbreidd frá því að vinna sig upp í 3. deild en endaði í 4. sæti, sem voru mikil vonbrigði. Naumt tap í næst síðustu umferð skipti þar sköpum.
C-liðið stóð sig frábærlega og vann allar þrjár viðureignirnar og vann sig upp í 10. sætið af botninum, en C-liðið var í næst neðsta sæti fyrir seinni hlutann.
Lokastaðan í 4. deild:
Rk. | SNo | Team | Games | + | = | - | TB1 | TB2 | TB3 |
1 | 21 | Mátar B | 7 | 6 | 1 | 0 | 13 | 28.0 | 0 |
2 | 19 | SFí B | 7 | 6 | 0 | 1 | 12 | 27.0 | 0 |
3 | 4 | SSA | 7 | 5 | 0 | 2 | 10 | 28.5 | 0 |
4 | 6 | Goðinn B | 7 | 5 | 0 | 2 | 10 | 26.5 | 0 |
5 | 7 | TR C | 7 | 4 | 1 | 2 | 9 | 26.0 | 0 |
6 | 5 | Fjölnir B | 7 | 4 | 0 | 3 | 8 | 26.5 | 0 |
7 | 13 | Bridge-fjelagið | 7 | 4 | 0 | 3 | 8 | 23.5 | 0 |
8 | 11 | Sf. Mosfellsbæjar | 7 | 4 | 0 | 3 | 8 | 22.0 | 0 |
9 | 15 | UMSB | 7 | 4 | 0 | 3 | 8 | 21.5 | 0 |
10 | 20 | Goðinn C | 7 | 4 | 0 | 3 | 8 | 21.0 | 0 |
11 | 17 | Sf. Vinjar B | 7 | 3 | 1 | 3 | 7 | 20.5 | 0 |
12 | 8 | Víkingaklúbburinn - Þróttur C | 7 | 3 | 0 | 4 | 6 | 20.0 | 0 |
13 | 16 | SSON B | 7 | 3 | 0 | 4 | 6 | 20.0 | 0 |
14 | 14 | SA D | 7 | 3 | 0 | 4 | 6 | 19.5 | 0 |
15 | 9 | TR D | 7 | 2 | 1 | 4 | 5 | 20.5 | 2 |
16 | 10 | Fjölnir C | 7 | 2 | 1 | 4 | 5 | 20.5 | 0 |
17 | 3 | TR F | 7 | 2 | 1 | 4 | 5 | 13.0 | 0 |
18 | 18 | Hellir Unglingar A | 7 | 1 | 2 | 4 | 4 | 16.0 | 0 |
19 | 12 | TR E | 7 | 1 | 2 | 4 | 4 | 14.5 | 2 |
20 | 2 | TG C | 7 | 1 | 2 | 4 | 4 | 14.5 | 0 |
21 | 1 | Kórdrengirnir | 5 | 2 | 0 | 3 | 4 | 10.5 | 0 |
Pistlar liðsstjóra Goðans verða birtir von bráðar.
Flokkur: Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 20:39 | Facebook
Athugasemdir
Okkar maður sjálfsögðu í sigurliðinu!
Áfram Kobbi Killer!
Aðdáendaklúbbur Kobba (IP-tala skráð) 4.3.2012 kl. 11:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.