Aðalfundur Goðans á mánudagskvöld.

Aðalfundur skákfélagsins Goðans verður haldinn nk. mánudagskvöld kl 20:30 í sal Framsýnar-stéttarfélags að Garðarsbraut 26 Húsavík. Stjórn hvetur félagsmenn til þess að fjölmenna á fundinn. Mikilvæg mál á dagskrá.

Dagskrá fundarins:

       -Kosinn fundarstjóri og ritari
       -flutt skýrsla stjórnar
      - fluttir reikningar (almanaksár)
      - kosið um skýrslu og reikninga
      - kosning í stjórn
      - kosning á einum varamanni í stjórn      
      - Inntaka nýrra félagsmanna      
      - lagabreytingatillögur sem séu löglega boðaðar
       -Önnur mál       

Að loknum aðalfundi verða veitt verðlaun fyrir nýliðið hérðasmót HSÞ í skák og einnig verðlaun fyrir skákþing Goðans í yngri flokki.  Að því loknu verður teflt.

        Stjórnin.                                 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband