Stúdering landshorna á milli.

Á skákæfingu kvöldsinsá Stórutjörnum fór fram tilrauna-stúdering í gegnum skype sem heppnaðist afar vel.  Félagar í suð-vestur goðorði Goðans, með Einar Hjalta Jensson í fararbroddi, voru staddir í Hafnarfirði og sendu stúderingarnar í gegnum Skype norður yfir heiðar beint í tölvu á Stórutjörnum, þar sem félagar þeirra í heimahéraði Goðans, tóku við þeim af ákafa.
Ekkert var því teflt í kvöld heldur einungis stúderað. Ætlunin er að endurtaka leikinn á Húsavík að viku liðinni.

Ritstjóra er ekki kunnugt um að stúderingar með þessum hætti hafi áður farið fram á Íslandi. Reynslan frá því í gærkvöldi opna nýja möguleika fyrir skámenn til framtíðar öllum til heilla.

IMG 0313

Páll Ágúst Jónsson , Tómas Björnsson, Björn Þorsteinsson, Sigurður Jón Gunnarsson, Jón þorvaldsson gestgjafi og Einar Hjalti Jensson stúderingasérfræðingur voru staddir í Hafnarfirðinum en þaðan voru stdúderingarnar sendar gegnum Skype norður yfir heiðar.

sept 2010 004

Sigurbjörn Ásmundsson, Ármann Olgeirsson og Hermann Aðalsteinsson voru staddir á Stórutjörnum og fylgdust með skjánum.

Þar sem um tilraun var að ræða var þessi stúderinga ekki auglýst sérstaklega, en þar sem hún heppnaðist mjög vel, verður efnt til stúderingakvölds á næstu skákæfingu sem fram fer í fundarsal Framsýnar-stéttarfélags á Húsavík nk. miðvikudagskvöld kl 20:30

Þeim stúderingum verður varpað upp á tjald með skjávarpa. Félagsmenn eru hvattir til þess að fjölmenna á fyrirhugað stúderingakvöld, en það verður auglýst nánar þegar nær dregur.  H.A.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband