Rífandi stemning í Rimaskóla !

Pistill um framgöngu A- og B- sveita Goðans-Máta  á Íslandsmótinu.

Þátttaka í Íslandsmóti skákfélaga er orðin að samfelldri skemmtun. Þegar einni stórhelginni lýkur fara menn strax að hlakka til þeirrar næstu og tengingin verkar líka á hinn veginn. Þannig var skákhelgin mikla á Selfossi í mars sl. okkur enn í fersku minni þegar við bjuggum okkur undir átökin í Rimaskóla 5.-7. okt. Við Goðar gleymum því seint þegar við stóðum á verðlaunapalli í Hvíta húsinu á Selfossi og tókum við okkar fyrsta bikar, umvafðir hlýju sunnlensku viðmóti og heillaóskum keppinauta. Til að gera viðburðinn enn eftirminnilegri kom í lokin til ryskinga fyrir utan staðinn eins og greint var frá í fréttum. Deiluefnið reyndist vera tiltekið afbrigði í Slavanum þar sem blóðheita skákmenn greindi á um ágæti þess að leika riddara snemma tafls til a6. Sem betur fer gengu góðir menn á milli og deilendur mynntust að sunnlenskum sið enda fráleitt að láta riddarafant úti á kanti rjúfa friðinn.

Óvænt uppákoma

Þátttaka Goðans-Máta í Íslandsmótinu um síðustu helgi var sérstök vegna þess hve skammt var síðan félögin runnu í eitt. Til þess að efla liðsandann var öllum þeim sem keppa áttu á föstudagskvöldinu boðið til sameiginlegs málsverðar í Suðurvanginum í Hafnarfirði. Vel tókst til með samhristinginn en þó kom óvænt babb í bátinn þegar ljóst varð skömmu fyrir teitina að fyrirtækið sem tekið hafði að sér að framleiða nýjar keppnistreyjur sameinaðs félags hafði týnt þeim.

Nú voru góð ráð dýr. Forsvaramenn fyrirtækisins stungu upp á því að bjarga málunum með því að lána okkur aðra tegund einkennisfatnaðar sem þeir áttu á lager. Þetta reyndust vera Spiderman-búningar sem eitthvert fjármálafyrirtækið hafði pantað á hátindi sannfæringar sinnar um eigið ágæti og nota átti á framkvæmdastjórnarfundi rétt fyrir hrun undir einkunnarorðum ofurmennisins: „Miklu afli fylgir mikil ábyrgð.“

Sá íturvaxnasti í okkar hópi, Arnar Grant, snaraði sér í einn Spiderman-búninginn af faglegum þokka og gekk meðal matargesta. Varð mörgum bilt við. Allir viðstaddir greiddu í kjölfarið atkvæði um það hvort þeir væru fúsir til þess að keppa í þessu sérstaka gervi. Niðurstaðan var sú að 56,3% voru reiðubúin, 28,6% voru andvíg en 15,1% voru tilkippileg ef sleppa mætti öðru hvoru, grímunni eða búningnum.

IMG 1061

Við þetta tækifæri flutti skákdrottningin glæsilega Guðfríður Lilja Grétarsdóttir ávarp þar sem hún hvatti nýja félaga sína til dáða en sagði að tilfinningar sínar blendnar á þessari stundu. Það væri ljúfsárt að koma út úr Hellinum en við tæki spennandi kafli á skákferlinum. Þvínæst kvaddi Hermann formaður sér hljóðs og færði undirrituðum veglega mynd að gjöf eftir Halldór Baldursson skopmyndateiknara, sem fléttaði listavel saman undirrituðum og hugmyndum manna um Neanderdalsmanninn.

Skákmaður

Þegar Goðar-Mátar höfðu matast og tæplega 70% þeirra íklæðst Spiderman-búningnum, heyrðist skyndilega bremsuhljóð mikið fyrir utan Suðurvanginn. Var þar kominn sendibifreiðarstjóri nokkur allsneyptur og með írafári miklu. Hann baðst margfaldrar afsökunar á að hafa farið með GM-treyjurnar í Bílabúð Benna í misgáningi. Var viðstöddum fyrirmunað að skilja hvernig sá misskilningur gæti verið tilkominn. 

Fram, fram aldrei að víkja...

Þegar í Rimaskóla var komið gengum við fylktu liði og sperrtum brjóskassa inn í keppnissalinn, álíka upplitsdjörf og forfeður okkar og formæður þegar þau skunduðu á Þingvöll á söguöld, en þó vantaði litklæði Spiderman-búningsins í sýningu þessa. Reyndar var Hermanni formanni létt eftir á þegar hann áttaði sig á því að ef A-liðið hefði íklæðst Spiderman-búningnum og Goðinn-Mátar unnið stórsigur, hefði mátt bera okkur þeim sökum að Gawain Jones hefði teflt allar skákirnar.

IMG 1068

Tæpast er unnt að lýsa þeirri stórkostlegu stemningu sem mætti okkur á skákstað. Loftið var mettað breiðu litrófi tilfinninga: tilhlökkun, vinarþeli, grimmd, sigurvilja, ótta, auðmýkt, hroka, háspennu, svekkelsi og sigurvímu. Mitt í þessu lævi blandna andrúmslofti lék mönnum þó bros á vör og það bros er ekta. Keppendum eru upp til hópa vel til vina og liðsstjórar líkjast bændum sem fylgjast hreyknir með gripunum sínum í réttunum. Stöku forvígismenn ofmetnast kannski um stund en sjá fljótlega að sér og verða sömu ljúfmennin og fyrr. Sérstaklega var gaman að sjá tvær af goðsagnapersónum íslenskrar skáksögu, þá Friðrik Ólafsson og Margeir Pétursson, setjast að tafli á ný. Þátttaka þeirra ein og sér lyfti þessum viðburði á hærra plan.

Stiklur úr orrustum

Í fyrstu umferð tókst A-lið Goðans-Máta á við Hellismenn og hafði sigur, 5-3. Sérstaka aðdáun vakti hve vasklega Hjörvar Steinn varðist beinskeyttri árás stafnbúa Goðans, Gawain Jones, og hélt jöfnu. Vera kann að Gawain hafi fundið til samkenndar með rauða hárinu en hann er frá Jórvíkurskíri og allir hans forfeður meira og minna rauðhærðir enda afkomendur víkinga en sjálfur er hann dökkur yfirlitum líkt og Egill Skalla-Grímsson. Á sama tíma sigraði B-lið okkar B-lið Hellis 4-2 þar sem sigur vannst á á 5. og 6. borði en öðrum skákum lauk með jafntefli.

IMG 1066

Í annarri umferð atti A-sveitin kappi við A-sveit Akureyringa og sigraði með minnsta mun, 4,5-3,5 eftir snarpa viðureign þar sem talsvert var um óvænta afleiki. B-sveit Goðans-Máta gerði jafnt við A-sveit Skákfélags Reykjanesbæjar þar sem nokkrar skákir skiptu um eigendur.

Í þriðju umferð laust A-liðinu saman við B-sveit Bolungarvíkur og unnu okkar menn þá viðureign 5,5-2,5. Þröstur Þórhallsson og Kristján Eðvarðsson unnu báðir sína þriðju skák í þessari lotu. Á meðan lagði B-lið okkar A-lið Fjölnis 4-2 þar sem Arngrímur Gunnhallsson vann sína 3. skák í röð og lauk því þátttöku sinni með fullu húsi eins og oft áður.

IMG 1065

Í 4. umferð mætti A-liðið loks ofjörlum sínum, Taflfélagi Reykjavíkur, og tapaði 2-6. Stafnbúinn, Gawain Jones, sótti mjög hart að Yuriy Kryvoruchko á 1. borði en sá úkraínski slapp fyrir horn í blálokin, vígmóður mjög eftir krappa vörn. Arnar Þorsteinsson gerði gott jafntefli við sjálfan Friðrik Ólafsson og Magnús Teitsson hreppti sigur gegn Margeiri Péturssyni með Vodafone-gambítnum svonefnda.

Niðurstaða

Hér kom vel í ljós munurinn á nokkuð þéttri sveit Goðans-Máta annars vegar sem tefldi fram Íslendingum á sjö borðum af átta og hins vegar ofursveit TR sem var með fjóra mjög öfluga útlendinga í sínum röðum auk sterkra heimamanna. Mönnun A-sveitar Goðans-Máta var einfaldlega í samræmi mið markmið þessarar leiktíðar: Að halda sæti sínu í 1. deild og afla Íslendingunum í liðinu dýrmætrar leikreynslu. B-liðið var fyrir þessa umferð í 2. sæti og tefldi við liðið í því þriðja, Skákdeild Hauka. Skemmst er frá að segja að góður sigur vannst, 5-1.

Að þessum fyrri hluta Íslandsmótsins loknum er A-sveit Goðans-Máta í 5. sæti í 1. deild og B-sveitin í 1. sæti í annarri deild. Hvort tveggja er eins og að var stefnt og telst árangurinn því prýðilegur. Liðsmönnum Goðans-Máta þakka ég vasklega framgöngu og einbeittan vilja til að mynda sterka liðsheild í kjölfar sameiningarinnar.  Keppinautum þakka ég drengilega keppni og ánægjulegar samverustundir.

Og eitt er víst: lokaumferðirnar í  mars verða hreint magnaðar!

Með skákkveðju,

Jón Þorvaldsson, liðsstjóri.

PS: Að vanda mun Hermann Aðalsteinsson, formaður og liðsstjóri C- og D-liða Goðans-Máta gera grein fyrir sínum sveitum.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þakka Jóni góðan pistil eins og hans var von og vísa.

Sighvatur Karlsson (IP-tala skráð) 13.10.2012 kl. 23:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband